Kæru vinir

Orðabókinni sem hér keyrði var aldrei ætlað að fara í almenna notkun. Um var að ræða tilraun með uppástungur að innslætti og birtingu á gögnum á einfaldan og þægilegan hátt með AJAX og jQuery. Leitarvélum var meinaður aðgangur sem ég taldi duga til að halda henni undir radarnum. Í kjölfar þess að vísanir á hana voru settar á nokkur spjallborð var orðið komið af stað.

Ég þekki ekki uppruna orðabókargagnanna og hef því engan rétt til að birta þau. Því neyðist ég augljóslega til þess að loka síðunni. Komi sá dagur að til verði opin þýingargögn mun ég opna orðabókina aftur.

Kveðja,
Steinar Hugi
hugbúnaðarverkfræðinemi

Opin gögn

Íslenskuvefir

steinar@steinar.is